30.4.2009 | 12:45
Hönd skal hendi þvo.
Öllum ber saman um að handþvottur sé ein besta vörnin gegn smitsjúkdómum. Við handlaugina fyrir framan vökudeild á Barnaspítalanum er fínt veggspjald þar sem fólk er leitt gegn um réttan handþvott með myndum og orðum.
Mér finnst þjóðráð að prenta góð spjöld með leiðbeiningum um handþvott og hafa þau sem víðast.
Ég hef nokkra reynslu af því að kenna börnum að þvo sér um hendurnar, þegar þau koma inn í kennslueldhús. Þau yngstu taka það alvarlega og vanda sig, en alltaf þarf að fylgjast með þessum handþvotti og rifja upp af hverju hann er mikilvægur.
Þegar fuglaflensan var að stinga sér niður í austurlöndum fjær, las ég að Japönum væri svo tamt að þvo hendur sínar að það væri minnst hætta á að þeir sýktust.
155 tilfelli staðfest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.