5.4.2009 | 10:06
Kjós 2
Árin fyrir aldamótin voru mikil sorgarár á Kiđafelli. Gísli móđurbróđir Ólafar drukkar í lendingu í Garđinum 1899 og sama ár deyr Gísli afi hennar. Ţriđji Gíslinn, Gísli bróđir Ólafar ferst síđan í apríl 1900 í miklu sjóslysi..(Himneskt er ađ lifa I bls.117 og173)
Mér finnst alltaf ađ ţessi áföll hafi á einhvern hátt haft áhrif á lyndiseinkunn Ólafar ömmu minnar. Ekki bara áföllin sjálf heldur líka hvernig mamma hennar tókst á viđ sorgina. Kannski má rekja ćđruleysi og hugarró ennţá lengra aftur í ćttir.
Víkjum nú sögunni í Bć. Ţar býr um aldamótin Andrés Ólafsson á móti foreldrum sínum Guđrúnu Halldórsdóttur (f. 9. okt. 1841) og Ólafi Jónssyni (f. 25. febr.1830). Andrés var fćddur 26. júní 1869: Ţar er líka Hólmfríđur (f. 3. nóv. 1872) systir Andrésar.(Kjósarmenn bls.bls. 326)
Andrés heillađist af svipfríđu heimasćtunni á Kiđafelli, ţau gengu í hjónaband 18. október 1902, ţá var Ólöf 19 ára og Andrés 34. Ţau tóku viđ búi í Bć. Guđrún móđir Ólafar og Sesselja amma hennar fluttust ţangađ međ henni, einnig Dagbjartur Gíslason og Gísli bróđir hans varđ ţar fljótlega heimilisfastur. Ţá eru í heimili 7 fullorđnir og 2 börn. .
Ólöf og Andrés hlóđu niđur börnum í Bć. Heimiliđ var fjölmennt, húsakynni ţröng og jörđin lítil. "Međ frábćrri atorku, forsjálni og skynsamlegri sparsemi af hálfu beggja hjónanna tókst ađ koma upp hinum stóra barnahópi." (Ljósmyndir I bls. 139) segir séra Halldór Jónsson en eftir honum hef ég flest ţessi talandi lýsingarorđ um formćđur okkar og -feđur.
Sigurbjörn Ţorkelsson, sem var systursonur Guđrúnar móđur Ólafar hefur eftir Sesselju ömmu ţeirra:"Ég biđ alltaf góđan Guđ ađ drýgja efni ţessa góđa fólks, sem skýtur skjólshúsi yfir mig, og er ég ţess fullviss, ađ hann bćnheyrir mig." síđan skrifar Sigurbjörn: "Og Andrés sagđi ţetta viđ mig... er ég innti hann eftir afkomu ţeirra međ ţennan mikla barnahóp: "Ţetta gengur furđanlega. Viđ lifum alltaf á bćnunum hennar ömmu ţinnar." (Himneskt er ađ lifa I bls. 323).
Tvísmelliđ á myndirnar til ađ stćkka ţćr.
Andrés fluttist međ fjölskyldu sína ađ Neđra-Hálsi áriđ 1922. Ţá eru ţau búin ađ eignast 12 börn: Ólafíu Guđrúnu 1903, -.Gest Gísla 1904, - Ágústu Sumarrós 1905,. hún lést fárra daga gömul, - Ágústu Sumarrós 1906, - Guđbjörgu Lilju 1908, - Ólaf 1909, - Sessselju 1911 - ,Odd 1912, - Karl 1914, - Berg 1916, - Gísla 1917 og Önnu 1919 Á Hálsi fćddust svo:Ásdís 1922 og Andrés 1924
Hólmfríđur systir Andrésar (d. 26. nóv. 1929) og Guđrún (d. 14. apríl 1933) móđir Ólafar bjuggu í skjóli ţeirra til ćviloka. Allt ţetta fólk er á myndinni
framhald.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 30.4.2010 kl. 17:04 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.