Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Fylgist með
hæ, hæ Bara að láta vita af mér. Ég fylgist með skrifunum þínum og hef gaman af. Guðbjörg Lilja
Guðbjörg Lilja (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 30. nóv. 2009
Kristinn afi þinn
Blessuð og sæl Hólmfríður. Mér þótti sérlega gaman að lesa um Kristinn afa þinn, vegna þess að ég heiti eftir honum, og hefur mig alltaf langað til að vita eitthvað um hann. Mamma mín heitir Guðný Erna Sigurjónsdóttir frá Norðurkoti á Eyrarbakka og skírði mig í höfuðið á frænda sínum vegna þess að hann var svo góður og fallegur maður eins og hún orðaði það. Bestu kv.Kristín F Hjartardóttir.
Kristín F Hjartardóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 23. ágú. 2009
Grjóteyrarmyndirnar
Sæl Fríða. Mikið var gaman að skoða myndirnar frá Grjóteyri. Það hefur greinilega margt breyst síðan þú varst þarna í sveit.
Ásdís Arnalds (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 27. maí 2009
Hér lenti ég inn fyrir tilviljun!
Vil þakka fyrir mig. Afar sérstakt.Ég á heima í Útkoti, Kiðafell er mjög nálægt. Einar Þórðarson var langafi minn. Hólmfríðar nafnið vakti athygli mína td heytir systir mín því nafni ásamt öðru.Fyrirgefðu framhleypnina en mér finnst þetta skondin tilviljun. Jarþrúður Dagbjört Flórentsdóttir.
Jarþrúður Dagbjört Flórentsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 4. maí 2009